20. apríl 2022 - 10:57 Útgáfuhátíð ByggðasöguHjalti Pálsson heiðursborgari SkagafjarðarLokaáfanga útgáfu Byggðasögu Skagafjarðar var fagnað í Höfðaborg á Hofsósi þann 11 apríl s.l. Lokabindið í þessu mikla verki fjallaði um Hofsós, Grafarós, Haganesvík og eyjarnar Drangey og Málmey.
|
07. desember 2021 - 20:52 Tilboð á Byggðasögu SkagafjarðarTíunda og síðasta bindi Byggðasögu Skagafjarðar kom út um mánaðamótin nóvember/desember 2021. Þar er fjallað um Hofsós og Hofsóshrepp, Grafarós, Drangey og Málmey auk Haganesvíkur og Haganesbæjanna. Sérstakt tilboðsverð er nú á öllum bindum Byggðasögunnar. |
23. nóvember 2021 - 09:44 Aðalfundur SögufélagsAðalfundur Sögufélags Skagfirðinga fyrir árin 2019-2020 var haldinn í Safnahúsinu á Sauðárkróki fimmtudaginn 18. nóvember 2021 kl. 16.15.
Hjalti Pálsson formaður félagsins setti fund, bauð gesti velkomna og gat þess að aðalfundur ársins 2019 hefði farist fyrir vegna covid-ástands haustið 2020. Í upphafi fundar minntist hann Kristmundar Bjarnasonar rithöfundar og heiðursfélaga frá árinu 2008 en Kristmundur lést þann 4. desember 2020 og vantaði þá rúman mánuð í að verða 101 árs. |
16. nóvember 2021 - 13:53 Aðalfundur Sögufélags 18. nóvemberAðalfundur Sögufélags Skagfirðinga fyrir árin 2019 og 2020
verður haldinn í Safnahúsinu á Sauðárkróki, efri hæð,
fimmtudaginn 18. nóvember 2021 kl. 16.15.
Dagskrá:
Minnst látins heiðursfélaga
Skýrsla formanns
Reikningar fyrir árin 2019 og 2020
Kosning í stjórn og varastjórn
Staða félagsins
Önnur mál
Allir félagsmenn velkomnir og kaffisopi á könnunni.
Stjórnin.
|
24. október 2021 - 16:23 Síðasta bindi Byggðasögu Skagafjarðar farið í prentHver staður hefur sinn sjarma og sín sérkenni, segir Hjalti PálssonÍ tilefni af því að síðasta bindi Byggðasögu Skagafjarðar er nú komin í prentun tók Páll Friðriksson ritstjóri Feykis viðtal við Hjalta Pálsson, sem hér er birt. |
31. ágúst 2021 - 09:38 Útgáfuhátíð ævisögu Eyþórs StefánssonarFöstudaginn 27. ágúst var haldin útgáfuhátíð bókar Sölva Sveinssonar um Eyþór Stefánsson tónskáld. Bókin, sem kom út í tilefni af 120 ára fæðingarafmæli Eyþórs, sem einnig ber upp á 150 ára byggðaafmæli Sauðárkróks. Sögufélag Skagfirðinga er útgefandi bókarinnar með stuðningi Sveitarfélagsins Skagafjarðar, en Eyþór var heiðursborgari Sauðárkróks.
|