Forsíða > Fréttir > Útgáfuhátíð Byggðasögu
Hjalti Pálsson

Útgáfuhátíð Byggðasögu

Hjalti Pálsson heiðursborgari Skagafjarðar

Lokaáfanga útgáfu Byggðasögu Skagafjarðar var fagnað í Höfðaborg á Hofsósi þann 11 apríl s.l. Lokabindið í þessu mikla verki fjallaði um Hofsós, Grafarós, Haganesvík og eyjarnar Drangey og Málmey.

Frá því útgáfa hófst árið 1999 til þessa síðasta bindis leið hartnær aldarfjórðungur. Verkið er viðamikið og ítarlegt en gefin er lýsing á hverri einstakri bújörð, getið bygginga og birt tafla yfir fólk og áhöfn á tímabilinu 1703 til útgáfuárs hverrar bókar. Verkið deilist niður eftir hinum gömlu sveitarfélögum Skagafjarðar, eftir atvikum eitt til tvö sveitarfélög í hverju bindi.

Leikfélags Hofsóss las úr völdum köflum Byggðasögunnar og sýndur var leikþáttur um Jón bónda sem leitaði ásjár hjá Hálfdáni presti á Felli eftir að konan hans hvarf eftir 20 ára búsetu í Málmey. Þá litu þeir Hjalti Pálsson og Kári Gunnarsson yfir farinn veg.

Ávörp fluttu Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri og Stefán Vagn Stefánsson, forseti sveitarstjórnar, en hann las upp bókun sveitarstjórnar frá 6. apríl. Þar kom fram að sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafi ákveðið að útnefna Hjalta Pálsson sem heiðursborgara sveitarfélagsins.

Í bókuninni segir:

Hjalti var bókavörður á Héraðsbókasafni Skagfirðinga 1976-1990 en tók þá við starfi héraðsskjalavarðar Héraðsskjalasafns Skagfirðinga til ársins 2000. Hjalti var ráðinn ritstjóri Byggðasögu Skagafjarðar árið 1995. Hjalti var sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu árið 2010 fyrir framlag til héraðssögu, fræða og menningar. Var það verðskulduð viðurkenning því fáir hafa lagt jafn mikið fram til byggðasöguritunar og -rannsókna en Hjalti Pálsson. Til vitnis um það er ritröðin Byggðasaga Skagafjarðar sem er órækur vitnisburður um viðamesta og metnaðarfyllsta verkefni í byggðasöguritun sem farið hefur fram á Íslandi. Við ritun byggðasögunnar hefur ritstjóri heimsótt hverja einustu jörð í Skagafirði og aflað viðamikilla og ómetanlegra gagna og upplýsinga. Þess má geta að Byggðasaga Skagafjarðar var tilnefnd til verðlauna Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, sem besta fræðiritið árið 2007. Í umsögn dómnefndar kom fram að í Byggðasögu Skagafjarðar fléttist saman í nútíð og fortíð land og saga, alþýðufróðleikur og vönduð sagnfræði í yfirgripsmikilli byggðasögu. Hjalti hefur einnig um áratuga skeið verið formaður Sögufélags Skagfirðinga en á vegum þessa elsta héraðssögufélags landsins hafa komið út á annað hundrað rit um sögu Skagafjarðar, m.a. Skagfirskar æviskrár, Saga Sauðárkróks, Skagfirðingabók og fleiri rit, auk byggðasögunnar. Hjalti hefur þar sem annars staðar lagt fram gríðarlegt vinnuframlag við ritun, ritstjórn og annað sem tilheyrir útgáfu ritanna og starfsemi Sögufélags Skagfirðinga. Þá hefur Hjalti fært Héraðsskjalasafni Skagfirðinga að gjöf og til varðveislu ýmis gögn og ljósmyndir úr sínum fórum.

Hjalti er annar í sögu sveitarfélagsins til að hljóta nafnbót heiðursborgara en Bjarni Haraldsson var útnefndur heiðursborgari Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrstur manna árið 2019. Jón Þ. Björnsson, Eyþór Stefánsson og Sveinn Guðmundsson höfðu hlotið heiðursborgaranafnbótina í tíð Sauðárkrókskaupstaðar áður.

Með því að sæma Hjalta Pálssyni heiðursborgaratitli vill Sveitarfélagið Skagafjörður þakka Hjalta fyrir hans framlag til héraðssögu, fræða og menningar um áratuga skeið og fyrir að gera Skagfirskt samfélag enn betra.

Ekki vissi Hjalti að þessi heiður væri að falla honum í skaut og kom honum á óvart. Þakkaði hann vel fyrir sig. „Þetta kemur mér nú verulega á óvart en ég met það mikils þann hug sem að baki þessu stendur og hvernig móttökur ég hef fengið í gjörvöllu héraðinu í öll þessi ár við þetta verkefni, hvatningu og hjálp. Menn hafa séð af tíma sínum til að sinna mér og upplýsa mig sem best þeir geta. Ég get ekki annað en verið annað en mjög þakklátur og sáttur við það og segi kærar þakkir fyrir mig,“ sagði Hjalti sem fagnað var með standandi lófaklappi.

Texti byggður á grein Páls Friðrikssonar á www.feykir.is. Þar má einnig sjá frekari umfjöllun og myndir.

Scroll to Top