Skagfirðingabók 2026 er komin út. Í bókinni er afar fjölbreytt efni. Þar er meðal annars fjallað um Eystein í Stokkhólma, um konurnar sem hlutu kosningu í hreppsnefnd Akrahrepps, um Johan Sabinsky kirkjusmið á Hólum og um Grófargilsdrauginn og þorskastríðin á Skagfirði 1877-1901, svo eitthvað sé nefnt. Alls eru greinar eftir 11 höfunda í ritinu. Bókin er litprentuð með fjölda ljósmynda og kostar 6500 krónur.
Greiðsla fyrir Skagfirðingabók er árgjald félagsmanna en aðrir geta pantað bókina í netfanginu saga@skagafjordur.is eða í síma 4536261.

